17.4.2006 | 14:04
Mengun og jarðtenging !
Gleðilega hátíð. Jæja nú ætti ég að fara að geta náð andanum. Nagladekkin af og svifryk minnkar strax. Er búinn að fá astma og í augun í vetur af þessari óþörfu mengun. Afhverju í ósköpunum má ekki banna nagladekk hér á höfuðborgarsvæðinu. Og afhverju hefur heilsa mín og margra annarra ekki skipt máli. Of dýrt að skola göturnar! Hafið þið heyrt lélegri rök? Ætla stjórnendum borgarinnar þyki gula skýið sem sést hefur í vetur fallegt? Nú á hugsanlega að draga úr notkun nagladekkja! Bull! það á að banna notkun þeirra! Takið ábyrgð borgarfulltrúar og stjórnið þegar þarf að stjórna.
Og meir um mengun! Eins og hún minnki eða sé minna slæm ef við eigum ónotaðan kvóta hjá Alþjóðastofnunum!? Hér eru reiknimeistarar á fullu við að reikna út ónotaðan kvóta. Svo segja ráðherrar hvað er þetta við eigum inni mengun fyrir nokkrum álverum. En það er léleg ávöxtun þessarar inneignar að nýta hana í álver. Hæstu ávöxtunina fáum við ef við nýtum ekki kvótan og leyfum landinu að vera ósnortið. Vissulega sýn sem fæstir ráðherrar hafa enda til langs tíma en samt rétt.
Ef við lítum inn á við og skoðum hug okkar af hreinskilni. Þá held ég að flestir ef ekki allir sjái geðveikina í stóriðjuuppbyggingu. En þeir sem stjórna eru svo hræddir við að verða sér til minnkunar ef þeir skipta um skoðun að það er bara keyrt á fullu. Stundarbrjálæði sem þetta er dýrkeypt fyrir næstu kynslóðir. En það skiptir ekki máli?
Núna skal lifað í hagvextinum! Hvernig sem við nú gerum það. það er nefnilega þannig að fæstir ná því að lífa í honum! Enda vita fæstir hvað það þýðir að lifa í hagvexti. Nema þeir sem aðgang eiga að ódýrum peningum og geta látið hann búa til meiri peninga fyrir sig. Sem útaf fyrir sig er vafasamt hátterni innan margra lánastofnana.
Hvað gerir hagvöxturinn fyrir starfsmenn dvalarstofnana eða aðra láglaunaþræla? Lítið sem ekkert nema smá auka kaupgetu sem verðbólgan tekur jafnharðan og étur. Þetta daglega þvarg stjórnmálamanna og fjármálafólks um vöxt eða verðbólguskot skipta litlu máli. Takið á daglegum vanda venjulegs fólks. Og ég lofa þið fáið atkvæði og viðskipti.
Gáfumannatal og langar útskýringar á engu skipta engu nema það er algjör tímaeyðsla. Komið niður til okkar sem lifum hér og hrærumst í svifryki og verðbólguskotum og verið memm!!!!!!!
Gleðilega upprisu og ósk um nýtt upphaf. Tvennar kosningar framundan kíkjum á jarðtengingu stjórnmálamannana gott fólk.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2006 | 18:28
Sigur lífs yfir dauða?
Það er páskadagur. Dagur vonar og dagur kærleikans. Mér datt í hug að heimfæra þetta á íslenskt samfélag. En það er erfitt í hraða græðgisins sem ræður hér flestu. Réttlæti ekki ranglæti umburðarlyndi í stað hroka og ótta. Hvar á að byrja þegar þeir sem stjórna vilja ekki eða hafa ekki kjark til að stjórna.
Þegar við lítum í kringum okkur birtist ranglætið og misskipting um allt. Uppreisn starfsfólks á stofnunum fyrir aldraða er síðasta dæmið. Og svo þarf að ræða það! Þegar þarf að framkvæmda en ekki ræða. Við gerum ekki vel við aldraða, það er staðreynd. Við gerum heldur ekki vel við starfsfólk sem á að annast eldra fólk, það er staðreynd. Er það nokkuð eftir nema breyta þessu?? Hvað er svona erftitt við það? Ég bara skil það ekki. Eins og tekjutengingar allskonar og persónuafsláttinn. Hvað er svona erftitt við þetta??
Húsnæðismál eru sögð í góðum málum. En er það svo ekki held ég! Það er réttur hvers og eins að eiga sér öruggt húsaskjól. Það sem er í gangi núna er bara hærra verð, hærri lán og greiðslubyrði í óvissu vegna tengingar lána við vísitölu. Við erum ekkert að eignast aðeins að borga vexti og vísitölu. Það á ekki að nota meir en 25% af launum í húsnæðismál. Og það á að aftengja húsnæðislán vísitölunni. Auðvitað allt að teknu tilliti til tekna, fjölskyldustærðar og húsnæðisstærðar.
Matur sem er grunnþörf á að vera ódýr. Og þá er bara að sjá til þess að svo verði. Breyta sköttum opna á innflutning og gera það sem þarf. Framkvæma og ekki segja það er ekki hægt vegna keðjuverkana, bara taka á því.
Að segja að fjármálamarkaðurinn stjórni okkur er vafasamt. Alþingi setur lög og þar er grunnvald samfélagsins samankomið. En við berum svo ábyrgð sem kjósendur. Og allt of lítið er um ábyrgð ráðherra. En hugsa má sér að ráðherrar væru ekki þingmenn enda verður það að teljast bara eðlilegt. Framkvæma og breyta gott fólk.
Von mín er að okkur takast að snúa lífshjólinu við og að það verði hamingjuhjól. Að við hættum þessu orðaskaki og förum að gera eitthvað. En innihaldsleysi frétta og málefna er svo íþyngjandi að bara það getur valdið þunglyndi. Sýna í verki að við getum tekið ábyrgð. Þingmenn og ráðherrar verða ekki frjálsir og án ábyrgðar þegar þeir þiggja embætti frá þjóðinni. Embættunum fylgir ábyrgð og ábyrgðinni fylgir krafa okkar staðfestu, umbyrðarlyndi og vilji til jöfnuðar. EN kjarklaus getur engin verið í ábyrgðarstöðu og samviska hvers og eins ræður ætið för.
Það er eðlilegt að krefjast þess að Alþingi að þar sé framkvæmt í þágu okkar islendinga. Þetta orðaskak og samvinnuleysi sem ríkir þar milli hins svo kallaðu meirihluti og svo minnihluta er óþolandi. Byltingarkennd frumvörp í þágu þjóðarinnar sem heild sjá of sjaldan dagsins ljós of mikið um að setja plástra á gömul sár. Hvað er ég að segja með þessu öllu? Kanski að ég vildi sjá kjark og þor og tilfinningahita hjá þeim sem stjórna hvort sem er á þingi eða annarsstaðar.
Jæja kanski er þetta full þungt? Verður betra næst, Gleðilega Páska.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2006 | 10:33