Lyftum vitund okkur og sjáum heildina.

Stundum verð ég hræddur við ástandsleysið sem er í gangi.  Allir á kafi í sjálfu ástandinu og að setja litla plástra á sárin.  Engin horfir yfir sviðið upp fyrir ástandið sjálft, engin þorir að krefjast endurnýjunar eða uppskurðar og ekkert breytist!

Upplifi mig sem atvinnunöldrara með sömu lausnina á tungunni sífellt að elda sama grautinn.  En endurtekning er oftast nauðsynleg stundum oft og oft.   Held við séum stundum svo hrædd við að hræra í grautarpottinum að allt brenni við og verði bragðvont.  En óttinn við breytingar, óttinn við tímabundinn vanda vegna endurnýjunar má ekki stöðva réttlætið. 

Ef við dveljum í gjörðum og tali í vandamálunum verði þau stærri og stærri svo einfalt er það.  Lausnin er alltaf það sem tala verður um hugsa, taka ákvörðun og framkvæma er lausnarmiðuð aðferð sem reynst hefur mörgum góð.   Við leysum ekki vanda dagsins með nefnd sem kemur svo með hugmynd að lausn þegar allt er liðið hjá.  Allt líður hjá þannig er það bara!  Ekki alltaf í rétta átt en allt líður hjá og viljum við vera bara áhorfendur að lífinu? 

Lyftum okkur upp fyrir vanda dagsins í dag.  Skoðum samfélag okkar sem heild og vinnum í lausninni.   Getur vel verið að eitthvað versni fyrst en svo er oft.  Reynum þá aftur og finnum sameiginlega leið að farsælu lífi. 

Vinnan göfgar ekki alltaf manninn.  Hún rænir okkur líka allar samverustundir og oft kærleikan til okkur sjálfrar.  Eins og allt er byggt upp í dag er engin leið framhjá ofurlöngum vinnutima sem skilar í raun ekki betri eða vandaðri vinnu.   Og alls ekki meiri hamingju fyrir manneskjuna! 

Til hvers byggjum við morgun-dag-kvöld og næturheimili fyrir börn og eldra fólk.  Fáum við fleiri gæðastundir vegna þessa?  Held ekki,  en hugsanlega stærra samviskubit og magasár.  Við verðum að staldra við og endurskoða og endurnýja og byrja lífið upp á nýtt.  Sem ein heild fólk í góðu landi þar sem nóg er til af öllu aðeins svo svakalega illa gefið! !

Samfélagið sem slíkt deyr ef við hættum ekki að elta skottið á hamingjuhjólinu og stöðvum það eitt lítið augnablik.  Eitt augnablik er nóg til að sjá og skoða, skilja og breyta og byrja upp á nýtt.........

Lyftum vitund okkar og sjáum heildina.....................   

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Júlía

Ég ætla að hafa það náðugt í ellinni sko. Ég vinn og vinn og er í skóla til að skapa mér enn meiri atvinnumöguleika.  En ég gæti allt eins drepist á morgun.  Það er dagurinn í dag sem skiptir máli , veit ég vel.  Er eitthvernveginn dottin út úr þeim hugsunarhætti..alla vega þetta árið.   Annars, góð samlíkingin með grautinn

Ester Júlía, 14.3.2007 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband