Aðgát skal höfð í nærveru sálar.

Get verið sammála um að mál sem þetta eru alvarleg.  Það verður þó að taka þau frá öðru sjónarhóli en við erum vön að gera á Íslandi.  Þetta snýst um heiðarleika, trúverðugleika og traust sem verður að vera  ófrávíkjanlegt að ríki hér á landi þegar um opinberstörf er að ræða.   Þetta snýst ekki um hvort viðkomandi sé sár eða moðgaður vegna þessa, mikið eða lítið sekur eða jafnvel alls ekki að beinu broti heldur hvort hann njóti framvegis trausts í starfi þegar þarf að taka á mál sem jafnvel svipar til þeirra er verið er að rannsaka.

Í greinargerð Ásbjörns Björnssonar og Ástráðs Haraldssonar kemur m.a. eftirfarandi fram: 

„Við teljum í ljósi framangreinds að fram hafi komið upplýsingar um atvik sem er til þess fallið að draga megi í efa trúverðugleika forstjóra FME en viljum ítreka að ekkert í okkar skoðun á þeim gögnum sem fyrir liggja tekur af tvímæli um að um lögbrot hafi verið að ræða"

Hagsmunir almennings ganga á undan öðru og verður því ef minnsti vafi er á heiðarleika að víkja viðkomandi úr starfi.   En ástæðulaust að vera með óbeinar ásakanir og ljótt orðbragð þegar þetta er rætt.  Komum fram við aðra eins og við viljum að komið sé fram við okkur. Verum hrein og bein án þess að gera lítið úr öðrum.

Nýja Ísland krefst þess að ný vinnubrögð séu viðhöfð í starfi hvort sem er á Alþingi eða í opinberum störfum að öðru leyti.


mbl.is Gat ekki um félög á Guernsey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða nýja Ísland?

Gunnar þarf ekki að hafa áhyggjur af því, að fá ekki starf við hæfi. Hvaða nýja Ísland?

Það má teljast merkilegt að orðið "heiðarleiki" skúli finnast í tungumálinu.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 18.2.2012 kl. 20:05

2 identicon

http://www.ruv.is/frett/alvarleg-vanskil-aldrei-meiri

Percy - hér er nýja Ísland!!!!!

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 18.2.2012 kl. 23:27

3 identicon

Ég verð að viðurkenna að þrátt fyrir góðan vilja er mér ómögulegt að skilja hvað þú meinar með þessari færslu

Agla (IP-tala skráð) 19.2.2012 kl. 18:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband