Lífið er einfalt!

Nokkur orð til afréttingar inn í daginn.  

Lífið er einfalt! Hversvegna flækja það fyrir þér? Hvers vegna velja hlykkjóttu leiðina þegar beina brautin liggur fyrir framan þig? Fylgdu réttri framþróun í lífinu og reyndu ekki að þvinga neitt fram. Þú getur ekki þvingað blóm að opnast! Ef þú reynir það, eyðileggur þú fegurðina og fullkomnunina í blóminu með óþolinmæði þinni. 

Það er réttur tími fyrir allt.   Því ekki að vera í takti við lífið, fylgja því og sjá undur Mín og dýrð birtast í sannri fullkomnun?  Þegar eitthvað er gert á röngum tíma, tefur það í stað þess að flýta fyrir eins og ætlunin var.  Bíddu þess vegna eftir Mér í kyrrð og trausti. Reyndu aldrei að æða áfram og framkvæma á röngum tíma. 

Hins vegar skaltu aldrei silast og eyða þannig dýrmætum tíma.  Gerðu þér grein fyrir að dýrðlegt munstur og áætlun er í öllu sem þú gerir og þakkuðu eilíflega fyrir.

Eileen Caddy


mbl.is Lánsumsókn Íslands hjá IMF afgreidd á miðvikudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband