Greiðslubyrði lána færð aftur fyrir lán!! Afhverju er ekki meir rætt um þessa frétt á mbl.is og visir.is???????

Greiðslubyrði lána verður færð aftur fyrir hrun og það sem eftir stendur af lánum að lánstíma loknum verður afskrifað, samkvæmt aðgerðum sem ríkisstjórnin kynnir á allra næstu dögum.

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra boðaði á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag að ríkisstjórnin myndi á næstu dögum kynna aðgerðir sínar til stuðnings skuldugum heimilum. Hann vildi hins vegar ekki fara nákvæmlega ofan í þessar aðgerðir fyrr en endanlega hefði verið gengið frá þeim.

Samkvæmt heimildum fréttastofunnar verður greiðslubyrði allra húsnæðis - og bílalána, hvort sem þau eru verðtryggð eða gengistryggð færð að því sem hún var tiltekinn dag áður en bankarnir og gengi krónunnar hrundu. Það sem eftir standi að lánstíma liðnum verði síðan afskrifað.

Ráðherra sagði tillögurnar taka mið af hagsmunum fólks og fjölskyldna en ekki hagsmuni fjármálastofnana og kröfueigenda.


mbl.is Greiðslubyrði aftur fyrir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband