Ekki meir Geir, fjölmiðlar hættum endulausudrullusoraskýringa leitinni!

Ekki meir ég bið um bara eitt "ekki meir" höldum áfram veginn.  Þegar ég er hættur að horfa á fréttir og vel Simpson þá er komið nóg!  Fjölmiðlum tekst að gera jafnvel jákvæðar fréttir neikvæðar með byrjum á td. "ekki er talið líklegt að þetta gangi" svo kemur jákvæð frétt sem búið er að draga broddinn úr!

Kominn er tími til að hætta að róta endalaust í fortíðinni.  Ráðamenn fyrir hrun virðast endalaust vera að réttlæta að þeir sváfu á verðinum.  Og þeir komast að í fjölmiðlum með sorgartón sinn endalaust. 

Neikvæðni allra fréttamiðla er með eindæmum.  Hvert á saklaus almenningur að leita eftir deginum í dag í sora fortíðar- og framtíðarfrétta.  Við förum á hausinn 2023 og hvað með það.  Í raun vitum við ekkert um það allt unnið út frá sjálfgefnum forsendum.

Það er núið sem er málið og hvernig við getum gert daginn í dag góðan og þokkalega hamingjusaman.

Svartagaldsraus er að eyðileggja okkur og engin virðist vilja sjá hvert þjóðarsálin stefnir.

Aðaleinkenni okkar er afneitun á andlega og sálarlega ástandi okkar "við stöndum okkur" er að fella okkur.


mbl.is Geir Haarde: Hann tók því illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband