Hvað er nýtt hér á ferð?

Furðulegt að þetta skuli koma upp núna! Þessi vinnubrögð hafa viðgengist í áratugi og fáir nema minnihlutinn kvartað undan ofríki meirihlutans.  Framkvæmdavaldið er með meirihlutan í vasa sínum og rússnesk kosning hefur einkennt afgreiðslu Alþingis á málefnum fræmkvæmdavaldsins.

Ég held að hægt sé að segja að ekki hafi ríkt venjulegt lýðræði á Íslandi miðað t.d. við hin Norðurlöndin.

 Einokun á afgreiðslu stjórnarfrumvarpa er skv. hefð. Samvinna milli meiri- og minnihluta engin og fá ef nokkur frumvörp samþykkt nema stjórnarinnar. 

Þannig hefur þetta verið um áratugabil og ekkert nýtt er að gerast! Ráðherrar, embættismenn og fjármagnið hefur stjórnað Íslandi.  Í raun er þetta alveg skýr valdníðsla en við erum orðin vön henni.

Vonandi erum við á leið inn í lýðræðistíma eftir þessa ofurhreinsun á landinu.  Tíma þar sem sannleikur og heiðarleiki eru leiðarljós opins samfélags.

Vonandi förum við og byggjum upp grunnþarfir fólks.  Treystum undirstöðurnar en til þess þarf nýtt fólk í Ríkistjórn, Seðlabanka og Fjármálaeftirliti.  Nýjir vendir sópa best gömlu ryki úr vegi.
mbl.is Þingmenn eins og afgreiðslufólk á kassa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband