Lokaummæl Harðar ?

Jamm, ekki er gott að gefa svona svar.  Rétt er að veikindin hafa ekkert með sjálfa baráttuna að gera. En samt á samkenndin að vera sterkari en baráttan,  hún brýst í gegn  eitt augnablik.   Samkennd á ögurstundum er finnst mér siðferðisleg gjörð og ég get ekki séð annað en Hörður hafi skotið sjálfan sig í fótinn.
mbl.is Hænuskref í rétta átt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Þú líka Brútus?

Torfi Kristján Stefánsson, 23.1.2009 kl. 15:39

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sammála

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.1.2009 kl. 16:24

3 identicon

Sammála Percy. Þetta svar er afskaplega ljótt og ólíkt Herði að svara svona. Veikindi eru alvarlegs eðlis og Geir fékk ekki niðurstöðuna fyrr en á þriðjudag.

Hitt er annað mál: Þekkið þið einhvern sem vill VG, Samfylkingu og Framsókn saman í stjórn???? Ég vil nýtt fólk. Dæmi Þorvaldur Gylfason, Einar Árnason hagfræðingur Eflingar, Ólafur Ísleifsson og svo framvegis. Fólk með viti sem hefur aldrei í þingsal setið.

Anna (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 16:32

4 Smámynd: Kristján Logason

----
Wrong answer 101


Sem blaðamaður þá setur þú viðmælanda inn í málið og spyrð hann spurningar.
Síðan kveikir þú á upptökutækinu og spyrð hann óræðrar spurningar sem engu máli skiptir í raun nema sem framhald af fyrri spurningu.

Viðmælandi þinn sem nú á traust þitt. Svarar samviskulega.

Ef þú vilt láta viðmælanda líta enn ver út skellir þú í miðri ræðu hans spurningu sem hann átti alls ekki vona á að verða spurður.

Með þessu hefur þú séð til þess að viðmælanda vefst tunga um tönn.

Þegar þetta er klippt og birt er breytt um fyrirsögn.

------------


Þetta eru svo augljós vinnubrögð að ég á ekki til orð.
Það er hafið stríð hér á landi sem aldrei fyrr um orð og tjáningarfrelsi.
Allir þeir sem ekki tjá sig með samskonar orð og setningarskipan og valdstjórnin eru úthrópaðir á torgum með fáránlegum svívirðingum sem menn ættu ekki einu sinn að láta út úr sér í einrúmi.

Stjórnvöld gera allt til þess að fólkið í landinu taki ekki af þeim völdin og landið sem þau telja sig ein eiga og geta ráðstafað

Þetta þarf að stöðva



Við erum þjóðin

Landið er okkar

Kristján Logason, 24.1.2009 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband